This page is only partially maintained in Icelandic. We apologise for any inconvenience this may cause. Refer to our LANGUAGE POLICY page for further details.
Hvaða efni er að finna?
Evrópubókasafnið – TEL (The European Library) veitir aðgang að efni flestra þjóðbókasafna Evrópu en þau eru 47 talsins. Þar er að finna margvíslegt efni svo sem bækur, tímarit, blöð, kort, ljósmyndir, tónlist, handrit og skjöl.
Auðvelt er að sjá hvort efnið er til á stafrænu formi og þá hvar.
Upplýsingar um myndirnar:
- Málverk: 'Meisje met de parel', Johannes Vermeer van Delft
- Stafræn bók: 'Harry Potter Titka', Kende B. Hanna
- Kort: Cosmographia by Claudius Ptolemaeus
- Handrit: 'Les Fleurs du mal', Baudelaire, Charles
- Ljósmynd: 'A Winterspaß', United Press Photo
- Nótur: 'Sange for Claveret', Johannes Sørensen
Til að nálgast efnið
er einfaldast að fylgja eftirtöldum fjórum skrefum:
I. Nota vefslóðina Evrópubókasafnið – TEL
II.Slá inn leitarorð, t.d. „Einstein”, og smella á „SEARCH“ hnappinn (A).
III. Niðurstöðusíðan sýnir:
- Lista yfir þau gagnasöfn sem leitað var í (B).
- Leitarniðurstöður úr gráskyggða gagnasafninu. Í þessu tilviki „Online books, images, maps, music… ” (C).
ATHUGIÐ
„See online “ hnappurinn (D) gefur beinan aðgang að stafrænu efni. Ef hann birtist ekki er viðkomandi efni ekki til á tölvutæku formi. Í öllum tilvikum gefur undirstrikaði textinn (E) aðgang að skráningarfærslu fyrir efnið.
IV. Til að sjá leitarniðurstöður úr ákveðnu gagnasafni skal velja það með því að smella á nafnið (F). Í þessu tilviki var breska þjóðbókasafnið valið og með því að smella á undirstrikaðan texta í leitarniðurstöðum birtist skráningarfærslan.
Ábending
Reynið ítarleit „Advanced search “ ef efni sem leitað er að finnst ekki:
- Velja gagnasafn(söfn). Það gefur nákvæmari leitarniðurstöður.
- Tilgreina að hverju á að leita, velja efnistegund, titil, höfund o.s.frv.
Hægt er að velja á hvaða tungumáli leitarviðmótið birtist.
Þjónusta
Ef efni, sem leitað er að, er ekki til á stafrænu formi er tilgreint í hvaða safni eða söfnum það er að finna. Sjá merkta ramman (G) á myndinni
Til að sjá skráningu á ritinu í tilteknu gagnasafni (H) er smellt á tengilinn „AVAILABILITY at library“.
Tengillinn „LINK to other services“ opnar aðgang að ýmsum vefjum þar sem m.a. er boðið upp á bókakaup og vefleitarforrit (I).
EF FYLLRI UPPLÝSINGAR ÓSKAST ER HÆGT AÐ SENDA TÖLVUPÓST TIL Info@TheEuropeanLibrary.org